Skip to main content

Elkem og Landsvirkjun semja til 2039

Elkem og Landsvirkjun hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup fyrir starfsemi Elkem á Grundartanga. Fyrri samningur fyrirtækjanna var til 2029 en sá nýi gildir til 2039. Samningsmagn er óbreytt eða 127 MW.

 

Viðskiptasamband fyrirtækjanna á rætur að rekja allt aftur til 1975 og Elkem er því einn af elstu stórviðskiptavinum Landsvirkjunar. Nýi samningurinn kemur í stað gildandi samnings og gildir til ársins 2039. Hann tekur til 127 MW samningsbundinnar afhendingar og veitir báðum aðilum aukinn sveigjanleika. Frá apríl 2029 felur samningurinn í sér raforkuverð með föstu lágmarksverði og hlutbundinni tengingu við markaðsverð á kísiljárni. Þannig njóta báðir aðilar ávinnings þegar verð á kísiljárni hækkar, jafnframt því sem samkeppnishæfni verksmiðjunnar er tryggð á tímabilum þegar markaðsverð er lægra.

Eins og mörgum er kunnugt hófst starfsemi kísilmálmverksmiðju á Grundartanga árið 1979 og er meginstarfsemi félagsins framleiðsla og sala á kísiljárni, með áherslu á sérhæfðar vörur sem notaðar eru við framleiðslu á hágæða stáli. Einnig framleiðir Elkem kísilryk sem notað er í sement og steypu um allan heim. Elkem starfrækir þrjár ofna, með áherslu á framleiðslu verðmætra sérvara, einkum svokallað High Purity Ferrosilicon. Sérvara Elkem er notuð í rafmagnsstál í rafölum, rafmótorum og spennum sem enda t.d. í rafbílum og vindmyllum. Á starfstíma verksmiðjunnar hefur raforkusamningi verið breytt og hann framlengdur nokkrum sinnum.

Birkir Guðmundarson, starfandi forstjóri Elkem á Íslandi:
„Samningurinn sem undirritaður er í dag undirstrikar gildi þess langa og góða samstarfs sem Elkem og Landsvirkjun hafa átt. Hann eykur fyrirsjáanleika í rekstri og styður við þann sveigjanleika sem við þurfum til að halda áfram að bæta afkomu verksmiðjunnar og meta ný sóknartækifæri til framtíðar.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:
„Við fögnum því að hafa náð nýju samkomulagi við Elkem, einn af elstu viðskiptavinum Landsvirkjunar. Fyrirtækin hafa átt farsælt samstarf í áratugi og styrkir þessi samningur þann grunn enn frekar. Við hlökkum til að halda samstarfinu áfram og styðja við framtíðarþróun starfsemi Elkem á Íslandi.“