Skip to main content

Framúrskarandi fyrirtæki

Elkem Ísland er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2016

Af tæplega 35.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 624 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika.
Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.

Skilyrðin eru:

  • Hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár
  • Er í lánshæfisflokki 1-3
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
  • Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð
  • Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
  • Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
  • Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo

Elkem Ísland ehf. er á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur. Núna þriðja árið í röð.