Skip to main content

Umhverfisskýrsla Elkem Ísland 2025 er komin út

Umhverfisskýrsla Elkem Ísland fyrir árið 2025 hefur nú verið birt. Í skýrslunni er fjallað um stefnu fyrirtækisins í umhverfismálum, helstu umhverfisþætti starfseminnar, vöktun og árangur, ásamt þeim umhverfisverkefnum sem eru í gangi og markmiðum til að draga úr losun og bæta auðlindanýtingu.

Skýrslan skiptist í fimm kafla og veitir heildstæða mynd af umhverfisstarfi Elkem Ísland, þar á meðal einu stærsta framtíðarverkefni fyrirtækisins – leiðinni að kolefnishlutleysi verksmiðjunnar. Verkefnið byggir á viljayfirlýsingu Elkem ásamt Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Þróunarfélagi Grundartanga, Orkuveitu Reykjavíkur, Orku náttúrunnar og Carbfix
 
"Elkem hefur ávallt lagt áherslu á að starfa í sátt og samlyndi við umhverfið og nærsamfélagið. Markmið okkar er að draga markvisst úr umhverfisáhrifum starfseminnar, á sama tíma og við aukum verðmætasköpun og bætta nýtingu auðlinda til að tryggja samkeppnishæfni fyrirtækisins,“ segir Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Ísland.

Umhverfisskýrsluna má nálgast hér