Skip to main content

Viltu hjálpa rafmagnsbílum að keyra lengra?

Elkem Ísland auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar fyrir sumarið 2018 í vaktavinnu og dagvinnu.

Getur þú:

  • Leyst krefjandi verkefni?
  • Lært af eigin mistökum og áskorununum?
  • Sýnt frumkvæði í verki?
  • Nýtt endurgjöf til að vaxa og þroskast sem starfsmaður?
  • Sýnt jákvætt viðhorf í verki?
  • Stundað öguð og nákvæm vinnubrögð?
  • Komið fram við samstarfsmenn af virðingu?
  • Unnið í tölvu og tjáð þig á íslensku?

Langar þig:

  • Að vinna á metnaðarfullum, framsæknum og faglegum vinnustað?
  • Að framleiða hágæðaafurðir?
  • Að vinna hjá alþjóðlegu tæknifyrirtæki?
  • Að leggja þitt að mörkum til að minnka kolefnisfótspor mannkyns?
  • Að vinna á vinnustað sem leggur áherslu á öryggi, gæði, jafnrétti og heilindi?

 Sumarstörf 2018

  • Á þrískiptum vöktum að degi, kvöldi og nóttu. Unnar eru 6 vaktir á 5 dögum. Í kjölfarið er fimm daga frí.
  • Á dagvöktum þar sem unnið er samfleytt í 7 daga frá kl. 7:30 til 18:00. Í kjölfarið er vikufrí.
  • Í dagvinnu þar sem unnið er alla virka daga.